Kynningarfundur um Svæðisskipulag Suðurnesja 2008 - 2024 haldinn í ÍAK í dag

Kynningarfundur um Svæðisskipulag Suðurnesja 2008 - 2024 verður haldinn í Íþróttaakademíunni í dag kl. 17:30.

Sveitarfélögin á Suðurnesjum, Reykjanesbær, Grindavíkurbær, Sandgerðisbær, Sveitarfélagið Garður og Sveitarfélagið Vogar, skipulagsnefnd
Keflavíkurflugvallar og Varnarmálastofnun Íslands munu þar kynna vinnu að nýju svæðisskipulagi Suðurnesja.

Fyrsti áfangi verksins var að skilgreina sameiginlega hagsmuni, þau viðfangsefni sem svæðisskipulagið þarf að fjalla um og þau leiðarljós og markmið sem
skipulagsvinnan skal fylgja. Til að kynna fyrsta áfanga verkefnisins boðar samvinnunefndin til opins kynningarfundar um: Leiðarljós, markmið og áherslur fyrir vinnu við Svæðisskipulag Suðurnesja Niðurfellingu Svæðisskipulags: Reykjanesbær, Sandgerðisbær, Gerðahreppur, Keflavíkurflugvöllur
1995-2015.

Fundurinn verður haldinn mánudaginn 3. maíkl. 17:30 til 18:30 í fyrirlestrarsal íþróttaakademíunnar við Krossmóa 58 í Reykjanesbæ.

Samvinnunefnd um svæðisskipulag Suðurnesja