Lækkun fasteignaskatts á atvinnuhúsnæði

Reykjanesbær
Reykjanesbær

Reykjanesbær lækkar fasteignaskatt atvinnuhúsnæðis enn frekar                           

Fyrir nokkru samþykkti bæjarráð Reykjanesbæjar að lækka álagningarstuðul fasteignaskatts á C-stofn atvinnuhúsnæðis á næsta ári úr 1,60% af fasteignarmati í 1,55%. Sú lækkun hefði þýtt 30 milljón króna lækkun tekna á milli ára. Á fundi bæjarráðs þriðjudaginn. 1. október samþykkti bæjarráð hins vegar enn frekari lækkun eða í 1,52%. Sú ákvörðun bæjarráðs var staðfest á fundi bæjarstjórnar þriðjudaginn. 6. október síðastliðinn. 

Tekjur Reykjanesbæjar af fasteignaskatti C-stofns atvinnuhúsnæðis verða með þessu rúmlega 46 milljón krónum lægri en ef álagningarstofninn hefði verðið óbreyttur á milli ára.