Lán til Reykjanesbæjar og Reykjaneshafnar

Reykjanesbær hefur gengið frá láni hjá Lánasjóði sveitarfélaga að upphæð 193 milljónir kr.  Lánið er til 14 ára og tekið til að endurfjármagna afborganir á lánum bæjarins í október 2010 hjá Lánasjóði sveitarfélaga.
Jafnframt hefur Reykjaneshöfn fengið samþykkt lán frá Lánasjóðnum fyrir 48 milljónir kr.  Lánið er til 14 ára og tekið til að endurfjármagna afborganir á lánum hafnarinnar í nóvember 2010 hjá Lánasjóði sveitarfélaga.