Langþráð hringtorg við Stekk lítur dagsins ljós

Fulltrúar Reykjanesbæjar, Ellerts Skúlasonar hf og Vegagerðarinnar við undirritun samningsins, ásam…
Fulltrúar Reykjanesbæjar, Ellerts Skúlasonar hf og Vegagerðarinnar við undirritun samningsins, ásamt sviðsstjóra Umhverfissviðs.

Í hádeginu í dag var skrifað undir verksamning milli Vegagerðarinnar og Reykjanesbæjar annars vegar sem verkkaupa og Ellerts Skúlasonar Hf sem verktaka, vegna framkvæmdar við hringtorg við Stekk í Njarðvík. Framkvæmdir munu hefjast á næstu dögum og mun verða lokið í lok október samkvæmt áætlun. Gert verður ráð fyrir tvöföldun Reykjanesbrautar í þessari hönnun og því verður hringtorgið þó nokkuð stærra en gengur og gerist. Auk þess að fá hringtorg á þessum gatnamótum mun vinstri beygja frá Hafnarvegi verða bönnuð og mun því öll umferð sem ætlar sér til norðurs frá Hafnarvegi fara um þetta nýja hringtorg.

Guðlaugur Sigurjónsson, sviðsstjóri Umhverfissviðs Reykjanesbæjar, segir það mjög ánægjulegt að fá þessa framkvæmd  í gang þar sem um sé að ræða líklega ein hættulegustu gatnamót á landinu og mörg ljót slys hafi átt sér stað þarna á undanförnum árum. Einnig að gott sé að bæta umferðaröryggið við Hafnarvegsafleggjerann,

Hægt verður að vinna töluverðan hluta án þess að umferð verði fyrir einhverri truflun en vegfarendur eru þó beðnir um að sína aðgát.

„Einhverjar truflanir verða á umferðinni þarna á meðan framkvæmdum stendur en við ætlumst til þess að verktaki standi sig í vegmerkingum og vegfarendur taki tillit til framkvæmda svo allt gangi vel á verktíma,“ segir Guðlaugur að lokum.