Leiksýning í Akurskóla

 

Fólkið í háhýsinu.

Leiklistarval Akurskóla sýnir þrjú örleikrit og einþáttung 24. og 26. apríl.
Nemendur úr 8. – 10. bekk Akurskóla sem hafa verið í leiklistarvali í vetur verða með leiksýningar á þriðjudag og fimmtudag. Nemendurnir hafa æft upp þrjú örleikrit og einþáttung.  Þau kalla sýninguna „Fólkið í háhýsinu“. Leikstjóri er Sólveig Rögnvaldsdóttir.
Sýningarnar verða í skólanum þriðjudaginn 24. apríl og fimmtudaginn 26. apríl og hefjast klukkan 20:30.   Aðgangseyrir er kr. 500.- og rennur ágóði til verkefnisins „Flott án fíknar“ en verkefnisstjóri þess í Akurskóla er Lovísa Hafsteinsdóttir námsráðgjafi. Á sýningunni verður einnig hægt að kaupa veitingar sem nemendur í „Flott án fíknar“ hópnum munu sjá um.
Við hvetjum foreldra, vini  og aðra vandamenn nemenda í Akurskóla til þess að sýna stuðning sinn í verki og fjölmenna á sýningarnar.