Leit að ellefu íbúum sem týndust við brotthvarf hersins

Bæjarhlið Reykjanesbæjar.
Bæjarhlið Reykjanesbæjar.

Árið 1990 voru tæplega 5000 íbúar á því svæði sem í dag heitir Ásbrú.
Þetta voru hermenn og fjölskyldur þeirra á Varnarstöðinni í Keflavík. Þegar
herinn hvarf á braut í lok árs 2006 voru íbúarnir um 2800 en töldust
samtals 11 þegar herinn var allur á burt.

Árni Sigfússon bæjarstjóri á íbúafundi í Holtaskóla í Reykjanesbæ í gærkvöldi:

„Við erum enn að reyna að finna út hverjir þessir ellefu voru, sem skráðir eru í íbúaskrár eftir að herinn fór. Einhver taldi sig hafa fundið fjölskylduna þegar hann arkaði fram á uppábúna og mjög Kanalega íbúð á svæðinu. Enn það reyndist vera „íbúð Kanans“ sem er hluti af merku nýju sýningarverkefni sem er íbúð sem er gerð
upp með húsgögnum, myndaalbúmum og heimilisbúnaði, eins og þar sé enn
búið. Á aðeins 7 árum hefur byggst upp tæplega 2000 manna byggð á Ásbrú, að öllum líkindum eitt stærsta skóla- og nýsköpunarþorp landsins. Lang flestir eru
skólanemar og fjölskyldur þeirra. Það má sannarlega segja að þar hafi
tekist að smíða plógjárn úr sverðunum“.