Lið Reykjanesbæjar búið að tryggja sér sæti í undanúrslitum Útsvars

Útsvarslið Reykjanesbæjar er komið í undanúrslit.
Útsvarslið Reykjanesbæjar er komið í undanúrslit.

Lið Reykjanesbæjar er búið að tryggja sér sæti í undanúrslitum Útsvars þennan veturinn líkt og í fyrra þegar það sigraði lið Akraness í æsispennandi keppni s.l. föstudagskvöld.  Úrslitin réðust í allra síðustu spurningunni og urðu lokatölur kvöldsins 73-64.

Við fylgjumst spennt með þessu skemmtilega liði Reykjanesbæjar og tilkynnum nánar þegar vitað er hvenær liðið keppir næst.