List án landamæra á Suðurnesjum

Engin landamæri í listsköpun og listupplifun.
Engin landamæri í listsköpun og listupplifun.

Listahátíðin List án landamæra var sett í Reykjavík þann 10. apríl sl. og er nú í fullum gangi. Hátíðin er einnig haldin víða um landið og laugardaginn 25. apríl kl. 13.30 fer fram opnunarhátíð Listar án landamæra á Suðurnesjum. Hátíðin er þar haldin í 6. sinn og hefur alla tíð verið samstarfsverkefni sveitarfélaganna á Suðurnesjum og Miðstöðvar Símenntunar á Suðurnesjum.

Leiklist og myndlist í forgrunni

Að sögn Guðlaugar Maríu Lewis, verkefnastjóra hátíðarinnar, eru spennandi viðburðir á dagskrá með leiklist og myndlist í forgrunni. Opnunarhátíðin sem fram fer í Frumleikhúsinu í Reykjanesbæ hefst með opnun litríkrar samsýningar þar sem sýnd verða verk af ýmsu tagi svo sem tölvugerðar teiknimyndir, silkiþrykk og perluverk. Við þetta tilefni verður einnig frumsýnt nýtt myndband með grínatriðum eftir notendur í Hæfingarstöðinni. Loks frumsýna Bestu vinir í bænum, í samstarfi við Leikfélag Keflavíkur og Gargandi Snilld,  nýtt sviðsverk.

Árshátíð í ævintýraskógi

Um 30 manna hópur tekur þátt í uppfærslunni „Árshátíð í ævintýraskógi“ sem er samið af leikstjórunum Guðnýju Kristjánsdóttur og Höllu Karen Guðjónsdóttur, sem eru þrautreyndar leikhúskonur úr Leikfélagi Keflavíkur. Hópurinn samanstendur af leikhópnum Bestu vinum í bænum, sem setur upp leikverk í 4. sinn á List án landamæra og krökkum af námskeiðunum Gargandi snilld, sem eru söng og framkomu námskeið sem Guðný hefur staðið fyrir um árabil. Frábær andi ríkir í leikhópnum og þar hafa allir múrar verið brotnir niður. Þar leika saman börn og fullorðnir, fatlaðir og ófatlaðir og meira að segja ævintýrin eru hrist út úr sýnum hefðbundna ramma, þannig að útkoman verður óútreiknanleg og spennandi. Auk frumsýningarinnar á laugardag verður verkið sýnt tvisvar á sunnudag og eru allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir.

Kaffihús í Hvammi og myndlist í Kaffitár

Til viðbótar við þessa viðburði stendur Björgin geðræktarmiðstöð fyrir kaffihúsi á sumardaginn fyrsta og þá standa kennarar í grunnskólanum Akurskóla fyrir myndlistarsýningu, í höfuðstöðvum Kaffitárs, á verkum sérlega hæfileikaríks nemanda úr 3. bekk.

„Það er því ærin ástæða til að lyfta sér á kreik um helgina og taka þátt í List án landamæra á Suðurnesjum og hví ekki að nýta tækifærið og líta við á Rokksafni Íslands og skoða Einkasafn poppstjörnunnar Páls Óskars, líta við hjá Skessunni í Skessuhelli, heimsækja Duushúsin með sína 8 sýningarsali með glæsilegum sýningum, bregða sér á Bókasafnið þar sem sýningin Endurbókun, mjög áhugaverð sýning á bókverkum, var opnuð í síðustu viku eða fræðast um ferðir víkinganna og víkingaskipsins Íslendings í Víkingaheimum,“ segir Guðlaug María og hlakkar til spennandi helgar.