List án landamæra - Brúðkaupsdraumur

Bestu vinir í bænum.
Bestu vinir í bænum.

Komdu í leikhús!

Undanfarna tvo mánuði hefur hópur af áhugaleikurum og söngvurum verið á stífum æfingum í Frumleikhúsinu í Reykjanesbæ. Þar hefur verið unnið út frá spuna og persónusköpun og handrit skrifað út frá hugmyndum sem komu fram. Leikritið sem er í sjö stuttum þáttum hefur fengið nafnið Brúðkaupsdraumur og fjallar um misheppnuð stefnumót, vináttu og drauma.

Nokkur vel þekkt sönglög koma fyrir í verkinu enda mjög gott söngfólk hér á ferð. Óhætt er líka að segja að leikararnir fara á kostum í gamni og alvöru.

Sýningarnar eru tvær, sú fyrri á laugardaginn 5. maí kl. 16.00 og seinni á sunnudaginn kl. 20.00 og er frítt inn. Fram koma; Amanda Auður Þórarinsdóttir, Bjarni Valur Agnarsson, Davíð Már Guðmundsson, Ívar Egilsson, Lára Ingimundardóttir, Margeir Karlsson, Sóley Valsdóttir, Unnur Hafstein Ævarsdóttir ásamt Bylgju Dís Gunnarsdóttur, Emil Freyssyni og Henning Emil Magnússyni sem jafnframt stýra verkefninu í ár. Einnig mun leynigestur stíga á stokk en ekki hægt að hafa fleirri orð um það hér.

Þetta er sýning sem enginn má missa af!

List án landamæra er samstarfsverkefni sveitarfélaganna á Suðurnesjum. Verkefnið er styrkt af Sambandi sveitarfélaga á Suðurnesjum.

---------------------------------------------------------------------------------------------------------------

LIST ÁN LANDAMÆRA KYNNIR LEIKHÓPINN „BESTU VINIR Í BÆNUM“

BESTU VINIR Í BÆNUM FRUMSÝNA EIGIÐ LEIKRIT,
BRÚÐKAUPSDRAUMUR,
Í FRUMLEIKHÚSINU, VESTURBRAUT 17.

EINUNGIS TVÆR SÝNINGAR

Sérstakur leynigestur mætir á svæðið.
Aðgangur ókeypis og allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir.

laugardaginn
5. maí kl. 16:00

sunnudaginn
6. maí kl. 20:00

Leikstjórn:
Bylgja Dís Gunnarsdóttir, Emil Freysson og Henning Emil Magnússon