Listahátíð barna í Reykjanesbæ í 11. sinn

Fjóla með góðan gest.
Fjóla með góðan gest.

Listahátíð barna í Reykjanesbæ verður sett með pompi og prakt miðvikudaginn 4. maí í ellefta sinn. Hátíðin er samvinnuverkefni  Listasafns Reykjanesbæjar, allra 10 leikskóla bæjarins, allra 6 grunnskólanna, Tónlistarskólans, dansskólanna Bryn Ballett Akademíunnar og Danskompanís og listnámsbrautar Fjölbrautaskóla Suðurnesja.

Duus Safnahús undirlögð

Duus Safnahús verða undirlögð undir myndlistarsýningar leik-, grunn- og framhaldsskólans auk þess sem þar er einnig ljósmyndasýningin Óskir íslenskra barna sem byggir reynslusögum úr samtíma íslenskra barna sem hafa upplifað ofbeldi, vanrækslu, einelti eða fátækt og sýnir óskir barnanna um betra líf. Meðan á hátíðinni stendur verður frítt inn fyrir fullorðna í fylgd barna.

Hæfileikahátíð grunnskólanna í Stapa

Föstudaginn 6. maí fer fram Hæfileikahátíð grunnskólanna í Stapa þar sem sýnt verður úrval stórglæsilegra árshátíðaratriða úr öllum skólunum.

Frábær fjölskyldudagur laugardaginn 7. maí

Vert er að taka frá laugardaginn 7. maí því þá verður boðið upp á fjölbreytta dagskrá fyrir fjölskyldur í tilefni hátíðarinnar. Um verður að ræða fjölbreyttar listasmiðjur m.a. múffuskreytingasmiðju, brúðgerð, tröllasmiðju, andlitsmálunarsmiðju og þrykksmiðju, fjölskyldujóga og tónlist auk þess  sem þau Bárður og Gilitrutt frá leikhópnum Lottu koma í heimsókn og Fjóla tröllastelpa heilsar upp á smáfólkið.

Nánari upplýsingar um dagskrána er að finna á www.listasafn.reykjanesbaer.is og á facebooksíðu Reykjanesbæjar.