Litlu skrefin í Plokki

Fyrir nokkrum árum skrifaði ég um plokk með þriggja ára dóttur minni. Þá snerist þetta mikið um að fara út, skoða heiminn og tína upp það sem varð á vegi okkar. Núna eru börnin mín orðin 9 ára og 16 ára og þó að margt hafi breyst þá er plokkið ennþá mikilvægt. Í dag snýst þetta ekki bara um að týna upp rusl. Þetta snýst líka um samtöl og að ræða neyslu, hvað endar hvar og af hverju þetta skiptir máli. Eldra barnið mitt sér þetta í stærra samhengi en það yngra er ennþá forvitið, tekur eftir öllu og spyr hversvegna er rusl á víðavangi sem við þurfum að plokka?

Plokkið er hluti af daglegu lífi hjá okkur. Við tökum eitthvað með okkur þegar við göngum fram hjá, án þess að gera mikið mál úr því. Stundum er það eitt rusl, stundum fleiri. Þetta eru lítil skref sem taka ekki langan tíma en safnast upp og hafa stór áhrif. Ef hver og einn myndi taka upp tíu rusl á dag þá safnast það upp í ótrúlegar tölur á ári.

En það sem mér finnst kannski skipta meira máli er vaninn. Að taka eftir og gera eitthvað í stað þess að ganga fram hjá, t.d. smá rusli á bílastæðinu þegar þú labba inn í íþróttahúsið til að sækja barnið þitt.
Við vitum líka meira í dag en áður. Rusl er ekki bara eitthvað sem er óþægilegt að horfa á, heldur hefur áhrif á náttúruna, fer út í hafið og endar á stöðum þar sem það á alls ekki heima.

Þess vegna skiptir hvert lítið skref máli og plokk þarf ekki að vera neitt flókið. Þetta getur verið hluti af göngutúrnum, leiðinni í skólann eða bara smá stund úti. Fyrir krakka og unglinga getur þetta líka verið einföld leið til að leggja sitt af mörkum.

Stóri plokkdagurinn er framundan og hvet ég alla til að taka þátt. Hvort sem það eru nokkur plokk eða heill poki þá skiptir það máli.
Þessa viku eru líka plokk-kerin okkar komin út á valda staði en ef þú safnar í nokkra poka þá máttu senda staðsetningu í ábendingagáttina og við sjáum um að láta sækja.
Þetta er bærinn okkar og ábyrgðin okkar.

Plokk kveðja,
Berglind Ásgeirsdóttir, garðyrkjustjóri.

Hér eru staðsetningar plokk kerana þessa vikuna:

  • Stígur já Eyjavöllum
  • Vatnsholtið
  • Kópa (Innri Njarðvík)
  • Geirdalur
  • Grænásbraut
  • Bergás – gatnamót
  • Borgarvegur- við Njarðvíkurskóg
  • Bílastæði við Háaleitisskóli
  • Skógarbraut (Móts við 1112)
  • Trönudalur (móts við nr9)
  • Hafnir
Ef það er ekki ker í nágrenninu er hægt að senda tölvupóst á umhverfismidstod@reykjanesbaer.is með staðsetningu á ruslinu og Umhverfismiðstöð Reykjanesbæjar mun sækja það.

Takk fyrir að hjálpa til við að fegra bæinn okkar!