Ljósanótt, fjölskylduhátíðin okkar! Þakkir til foreldra og barna

Frá ljósanótt.
Frá ljósanótt.

Nú er fimmtánda Ljósanóttin liðin og er það samdóma álit manna að hún hafi farið vel fram.  Fjölskyldu- og félagsþjónusta Reykjanesbæjar, útideildin og Lögreglan á Suðurnesjum voru með vakt í öryggismiðstöðinni á Ljósanótt eins og undan farin ár. Örfá börn voru færð í öryggismiðstöðina og foreldrar brugðust skjótt við og sóttu börnin sín. 

Ljósanótt er fjölskylduhátíð og fjölskyldur sameinast úr öllum áttum í Reykjanesbæ á þessum tímamótum.   Það er því mikilvægt að unglingarnir okkar fái skýr skilaboð frá foreldrum sínum og samfélaginu svo þau séu meðvituð um að Ljósanótt er fjölskylduhátíð. Ég vil þakka þeim foreldrum og börnum sem fóru heim að lokinni flugeldasýningu og áttu góða stundir saman.

Á Ljósanótt var einnig formlega opnað Fjölskyldusetur Reykjanesbæjar þar sem markmið er að veita fjölskyldum fræðslu í formi fyrirlestra og námskeiða. Fjölskyldusetur er staðsett á Skólavegi 1 og vil ég þakka þeim fjölmörgu foreldrum sem komu á Ljósanótt til að skoða húsið og kynna sér starfsemi hússins.
Foreldrar verum áfram ábyrg og sýnum börnunum okkar það í verki. Verum dugleg að nýta okkur þjónustu Fjölskylduseturs í framtíðinni til að efla okkur enn frekar í foreldrahlutverkinu
Kveðja

María Gunnarsdóttir
forstöðumaður barnaverndar