Ljósanótt handan við hornið 2. - 6. september

Flugeldar á Ljósanótt.
Flugeldar á Ljósanótt.

Að sögn Valgerðar Guðmundsdóttur, framkvæmdastjóra Ljósanætur, gengur undirbúningur þessarar sextándu menningar- og fjölskylduhátíðar Reykjanesbæjar, vel og segir hún flesta stóru viðburðina tilbúna eða langt komna.  „Heimafólk er að venju í öllum helstu hlutverkum, hvort heldur er um tónlist eða myndlist er að ræða og spennandi verður að sjá hvað í boði verður.  Stór hópur fólks kemur að undirbúningnum eins og venjulega og eru þar á ferðinni bæði íbúarnir sjálfir, ýmis  félagasamtök og stofnanir og svo auðvitað starfsmenn Reykjanesbæjar en framkvæmd hátíðarinnar er á ábyrgð bæjarfélagsins.“  Valgerður segir fjárframlag bæjarfélagsins til hátíðarhaldanna heldur lægra en áður en að vonast sé eftir að fyrirtæki í bænum bregðist við því með auknu framlagi og nú þegar séu farin að berast svör frá þeim sem lofa góðu. Þá er vefur Ljósanætur, ljosanott.is, tilbúinn til notkunar og eru íbúar og fyrirtæki hvött til að fara að setja þar inn upplýsingar um viðburði. Unglingaráð körfuknattleiksdeilda Keflavíkur og Njarðvíkur, Karfan, hefur að venju umsjón með sölutjöldum á hátíðarsvæðinu og áhugasamir eiga að snúa sér beint til þeirra í gegnum sala@ljosanott.is.

Hvernig lítur dagskráin út?

„Við þjófstörtum að venju á miðvikudeginum 2. september með kvöldopnun verslana við Hafnargötu og frumsýningu tónleika í Andrew´s á vegum Með Blik í auga sem í ár bera heitið Lög unga fólksins þar sem ýmsir stórsöngvarar halda áfram að rekja fyrir okkur tónlistarsögu Íslendinga. Tvennir tónleikar  verða einnig á sunnudeginum."

Formleg setning og opnanir á fimmtudegi

"Á fimmtudeginum er hátíðin sett formlega við Myllubakkaskóla kl. 10.30 með aðstoð allra leik- og grunnskóla bæjarins.  Seinni partinn opna svo flestar listsýningarnar og bæjarbúum öllum er boðið í Duus Safnahús kl. 18.00 þann dag en þá verða opnaðar þar fjórar nýjar sýningar.  Þar ber hæst ljósmyndasýningin í Listasalnum, Andlit bæjarins, sem er samstarfsverkefni Listasafnsins og Ljósops sem gengur út á það að ná ljósmyndum af öllum bæjarbúum. Í Gryfjunni sýnir ungur hönnuður héðan úr bænum, Arna Atladóttir, verk sín. Í Stofunni í Bryggjuhúsinu verður finnskur textíllistamaður, Eija Pirttilahti og í Bíósalnum verður sýning í tilefni 100 ára afmælis Keflavíkurkirkju sem er samstarfsverkefni Byggðasafnsins og kirkjunnar.

Á föstudeginum fer fram tónlistardagskrá á smábátabryggjunni við Duus og þar býður Skólamatur upp á sína árlegu Ljósanæturkjötsúpu. Unglingaball í svipuðum dúr og í fyrra er í undirbúningi þetta kvöld.  Áhugaverð nýjung verður svo í boði síðar þetta kvöld þegar íbúar í gamla bænum bjóða til heimatónleika og verða þeir kynntir betur síðar en þetta er einmitt skemmtilegt dæmi um sjálfsprottin verkefni íbúa bæjarins."

Sveitapiltsins draumur á Ljósanótt

"Laugardagurinn er eins og áður stærsti dagurinn með sinni einstöku árgangagöngu, sögugöngu, leiktækjum, barnadagskrá í umsjón Leikhópsins Lottu og stórtónleikum á útisviðinu á Bakkalág um kvöldið.  Á tónleikunum ber hæst að við fáum að heyra valda kafla úr  „showinu“ Sveitapiltsins draumur, Rúnar Júl 70 ára sem færri en vildu sáu í Stapa í vor.  Einnig koma fram keflvísku böndin Kolrassa krókríðandi og Sígull og tónlistarmaðurinn Guðmundur Rúnar Lúðvíksson mun ásamt hljómsveit leika eigin tónlist. Eftir flugeldasýninguna, sem er í boði HS Orku eins og áður, mun Jónas Sig og ritvélarnar leika nokkur lög áður en fjölskyldufólkið tygjar sig heim og hinir líta kannski við á veitingahúsunum en búast má við góðri dagskrá hjá þeim að venju."

Leyniviðburður á sunnudag

"Á sunnudeginum verða öll sölutjöld enn opin og einnig allar sýningar þannig að fólk hefur tíma til að njóta í rólegheitunum þess sem það missti af í fjörinu á laugardeginum.  Einnig er í undirbúningi skemmtilegur leynilegur viðburður í Höfnunum þennan dag þar sem íbúarnir eru að skipuleggja eitthvað óvænt og verður það kynnt nánar síðar."

Muna að skrá viðburði á vef Ljósanætur

Undirbúningsnefndin hvetur alla þá sem ætla að vera með viðburð á Ljósanótt að koma honum sem fyrst inn á vef Ljósanætur og alls ekki síðar en 23. ágúst því þá munu Víkurfréttir taka þaðan allar upplýsingar í dagskrárbæklinginn sem blaðið gefur út. "Svo er bara að vera kátur og hlakka til að fjölskyldan geti skemmt sér saman á Ljósanótt,“ segir Valgerður Guðmundsdóttir að loku.