Ljósanótt með hefðbundnu sniði þótt ýmsar breytingar hafi orðið

Styrktaraðilar og aðstandendur Ljósanætur í blíðskaparveðri í Reykjanesbæ.
Styrktaraðilar og aðstandendur Ljósanætur í blíðskaparveðri í Reykjanesbæ.

Ljósanótt verður ekki haldin án styrktaraðila né aðkomu bæjarbúa að dagskrá. Skrifað var undir samninga við þrjá stærstu styrktaraðilana í morgun, Landsbankann, Isavia og Nettó. Valgerður Guðmundsdóttir framkvæmdarstjóri sagði við undirskrift fulltrúa stærstu viðburða verða stærri og stærri með ári hverju. „Það er fagnaðarefni fyrir mig sem er að upplifa Ljósanótt í 18. sinn.“ Ljósanótt verður haldin 30. ágúst til 3. september.

Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri fór yfir helstu styrktaraðila og þær breytingar sem orðið hafa í hátíðardagskránni að undanförnu. Allt er þó með hefðbundnu sniði. „Í fyrra slepptum við blöðrum við setningarathöfn að ósk bæjarbúa sem láta sér annt um umhverfið og vegna aukinna öryggiskrafna munu bílar fornbílaklúbbsins ekki aka niður Hafnargötu í ár. Þá styrkir HS Orka ekki flugeldasýninguna í ár þar sem hún samræmist ekki nýsamþykktri umhverfisstefnu fyrirtækisins.“ Kjartan Már sagði flugeldasýningu hins vegar ekki sleppt, enda væri ósk bæjarbúa að hafa hana áfram. Í ár verður sýningin í boði Toyota umboðsins í Reykjanesbæ. Alla dagskrárliði má nálgast á vef Ljósanætur.

Auk Toyota eru stærstu styrktaraðilar Landsbankinn, sem býður upp á stórtónleika á stóra sviði að kvöldi laugardags, Isavia býður upp á bryggjuball á föstudagskvöldi og styrkir Heimatónleika í gamla bænum, Securitas tryggir öryggi Skessunnar í hellinum, Nettó styrkir barnadagskrá og árgangagöngu, Skólamatur býður upp á kjötsúpu við bryggjuball og Lagardére styrkir Ljósanótt almennt.
Að venju geta allir fundið eitthvað við sitt hæfi. Fjölskyldan getur unað saman við leik og fjölbreytta barna-, unglinga- og fjölskyldudagskrá, sótt sýningar og tónleika af ýmsum toga og tekið þátt í íþróttaviðburðum. Súpuveislur Nettó fyrir árgangagöngu og Skólamatar á bryggjuballi tryggja að allir séu saddir.

Fullt af dagskrárliðum alla daga

Á miðvikudeginum verður tónlistarsýningin Með soul í auga frumsýnd í Andrews og þá verða verslanir með fyrstu kvöldopnun Ljósanæturhátíðar. Íþróttafólk getur byrjað hátíðina með því að taka þátt í Ljósanæturhlaupi Lífsstíls.

Á fimmtudeginum ber setning Ljósanætur hæst með þátttöku allra grunnskólabarna í Reykjanesbæ og elsta árgangi leikskólanna. Þá verður fjöldi sýninga opnaðar og hjólbörutónleikar í Keflavíkurkirkju.

Á föstudeginum verður bryggjuball við Smábátahöfn með kjötsúpu og skemmtilegri tónlist. Heimatónleikar í gamla bænum hafa slegið í gegn og þeir verða á sínum stað í kvölddagskránni.

Á laugardeginum er bæði hin vinsæla árgangaganga og kvölddagskrá á og við stóra sviðið stærstu viðburðir dagsins. Að venju er 50 ára árgangurinn í forgrunni. Að lokinni flugeldasýningu geta þeir sem ekki hafa fengið nóg skellt sér á Queen messu í Keflavíkurkirkju.

Á sunnudeginum verða Hafnarbúar með flotta menningardagskrá, tónleika Elízu Newman og KK í Kirkjuvogskirkju og opið samkomuhús. Þeir sem eru sérstaklega árrisulir geta skellt sér í Ljósanæturgolfmót kl. 7:00 í Leiru og þeir sem hafa misst af sýningum eða leiktækjum geta náð því upp á sunnudeginum. Sýningarsalir verða opnir og tónlistarsýningin Með soul í auga flutt tvisvar þann dag.

Allar nánari upplýsingar um Ljósanótt veitir Valgerður Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri, valgerdur.gudmundsdottir@reykjanesbaer.is.

Frá setningarathöfn Ljósanætur 2016