Ljósanótt nálgast – Eruð þið klár?

Undirbúningur fyrir Ljósanótt, sem fram fer 3.–6. september, er kominn á fulla ferð. Reykjanesbær skapar hátíðinni umgjörð með föstum viðburðum en það eru íbúar, félög og fyrirtæki sem fylla bæinn af lífi og gera hátíðina að því stórkostlega samfélagsverkefni sem hún er.

Nú er rétti tíminn til að hrinda hugmyndum í framkvæmd, undirbúa lýsingu í gluggum og görðum og uppákomur fyrir gesti og gangandi. Það eru ljósin, listir og þátttaka samfélagsins sem skapa þá einstöku stemningu sem Ljósanótt er þekkt fyrir.

Við hvetjum alla til að skrá viðburði á ljosanott.is svo þeir verði hluti af opinberri dagskrá hátíðarinnar. Síðasti dagur til að skrá inn viðburð fyrir prentútgáfu Víkurfrétta er sunnudagurinn 23. ágúst. Að öðru leyti er hægt að skrá inn viðburði fram að hátíð. Á síðunni er einnig að finna allar helstu upplýsingar um hátíðina. Fyrir samtal eða ráðgjöf er hægt að senda tölvupóst á ljosanott@reykjanesbaer.is.

Tökum höndum saman og gerum Ljósanótt 2026 einstaka!