Ljósleiðarinn í Reykjanesbæ

Erling Freyr Guðmundsson framkvæmdastjóri Gagnaveitu Reykjavíkur og Kjartan Már Kjartansson bæjarst…
Erling Freyr Guðmundsson framkvæmdastjóri Gagnaveitu Reykjavíkur og Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri Reykjanesbæjar handsala samkomulagið. Ljósmynd: GR

Gagnaveita Reykjavíkur og Reykjanesbær gerðu í dag með sér samkomulag um ljósleiðaravæðingu í bænum. Þeir Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri Reykjanesbæjar og Erling Freyr Guðmundsson framkvæmdastjóri Gagnaveitu Reykjavíkur skrifuðu undir viljayfirlýsingu þessa efnis. Samkvæmt henni stefnir Gagnaveita Reykjavíkur að því að ljúka tengingu við Ljósleiðarann í öllum hverfum fyrir árslok 2021.

Verkefnið kynnt á Framkvæmdaþingi

Reykjanesbær er í miklum vexti og er nú fimmta fjölmennasta sveitarfélag landsins með um 18.000 íbúa. Þetta kallar á mikla uppbyggingu og sveitarfélagið gengst fyrir Framkvæmdaþingi mánudaginn 9. apríl í Hljómahöll. Nánari upplýsingar um þingið er að finna á vefnum. Verkefni Ljósleiðarans verður á meðal framkvæmdanna sem þar verða kynntar.

Íbúar í Reykjanesbæ geta  haft áhrif á í hvaða röð hverfi og byggðarkjarnar verða tengdir Ljósleiðaranum. Það gera þeir með því að lýsa yfir vilja til að tengjast Ljósleiðaranum á sérstakri síðu.

Samstarf um uppbygginguna

Samhliða samkomulaginu við Reykjanesbæ hefur Gagnaveita Reykjavíkur auglýst eftir samstarfsaðilum. Samstarfið getur verið meðal annars:

  • að selja GR fjarskiptalagnir sem fyrir eru í sveitarfélaginu og nýst geta við ljósleiðaravæðinguna, eða
  • með samnýtingu framkvæmda með öðrum veitufyrirtækjum, fjarskiptafyrirtækjum eða sveitarfélaginu sjálfu

Eitt gíg í boði

Heimilum í þessum byggðarkjörnum mun standa til boða Eitt gíg gæðasamband Ljósleiðarans. Hann gefur kost á 1000 megabitum bæði til og frá heimili.

Flest stærstu fjarskipta- og afþreyingarfyrirtæki landsins bjóða þjónustu sína um Ljósleiðarann. Viðskiptavinum stendur til boða val á milli fjölmargra þjónustuleiða Vodafone, Nova, 365, Hringdu og Hringiðunnar.

Reykjanesbær mótar framtíðina – Ljósleiðaravætt Ísland

Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri Reykjanesbæjar fagnar komu Ljósleiðarans. „Ljósleiðarinn mun ekki einungis færa heimilum bæjarins öflugt netsamband. Hann mun einnig eiga þátt í því að smyrja hjól atvinnulífsins með því að styrkja stoðir nýsköpunar og frumkvöðlastarfs. Reykjanesbæjar bíður björt framtíð og enn frekar með traustum innviðum,“ segir Kjartan Már.

Þessi tenging íbúa í sveitarfélaginu við opið net Ljósleiðarans styður við markmið stjórnvalda um ljósleiðaravæðingu alls Íslands. Verkefnið í Reykjanesbæ er alfarið á viðskiptalegum forsendum og ekki er sótt um ríkisstyrki vegna hennar.

Lokið við höfuðborgarsvæðið 2018

Nú sér fyrir endann á verkefnum Gagnaveitu Reykjavíkur við uppbyggingu Ljósleiðarans í þéttbýlinu á höfuðborgarsvæðinu. Tengingu heimila í Reykjavík lauk 2015 og á þessu ári verður lokið við tengingu húsa í Kópavogi, Garðabæ, Hafnarfirði og Mosfellsbæ. Jafnframt er unnið að ljósleiðaravæðingu Borgarness og fleiri byggðakjarna í Borgarbyggð.
„Við höfum lengi haft augastað á ljósleiðaravæðingu Reykjanesbæjar. Nýlega lögðum við stofnstreng suður eftir sem opnar á stækkun þjónustusvæðis Ljósleiðarans á Reykjanesi.“ segir Erling Freyr Guðmundsson framkvæmdastjóri Gagnaveitu Reykjavíkur.

Nú þegar eru um 89 þúsund heimili tengd opnu neti Ljósleiðarans. Það eru um 65% allra heimila í landinu. Áætlað er að 6 þúsund heimili bætist við á þessu ári. Stefnt að því að tengingum með samkomulaginu við Reykjanesbæ og nýlegu samkomulagi við Árborg verði lokið árið 2021. Þá er reiknað með að um 113 þúsund heimili eigi kost á þjónustu Ljósleiðarans.