Loftrýmisgæsla við Ísland er hafin

Frá loftrýmisgæslu þýska hersins hér við land. Ljósmynd: Víkurfréttir
Frá loftrýmisgæslu þýska hersins hér við land. Ljósmynd: Víkurfréttir

Loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins við Ísland er að hefst að nýju með komu flugsveitar kanadíska flughersins. Alls munu um allt að 160 liðsmenn taka þátt í verkefninu og til viðbótar starfsmenn frá stjórnstöð NATO í Uedem, Þýskalandi (Combined Air Operations Center). Flugsveitin kemur til landsins með sex Hornet CF-188 orrustuþotur.

Fyrstu þoturnar koma til Reykjanesbæjar 11. og 12. maí. Gert er ráð fyrir aðflugsæfingum að varaflugvöllum á Akureyri og Egilsstöðum á tímabilinu 17. maí til 19. maí.

Verkefnið verður framkvæmt með sama fyrirkomulagi og fyrri ár og í samræmi við loftrýmisgæsluáætlun NATO fyrir Ísland. Ráðgert er að verkefninu ljúki miðjan júní. Verkefnið er framkvæmt af starfsmönnum Landhelgisgæslu Íslands á Öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli í samvinnu við Isavia.