Lokað í Skessuhelli vegna viðgerða

Lummubakstur við Skessuhelli
Lummubakstur við Skessuhelli

Komið hefur í ljós að óveðrið sl. föstudag olli talsverðum skemmdum við og í Skessuhelli og verður hellirinn því lokaður á meðan að viðgerð stendur yfir. Sjórinn sem gekk upp á land hreinsaði burt mikið af jarðvegi og því er göngustígurinn upp við hellinn úr lagi genginn og beinlínis hættulegur. Tilkynning verður send út um leið og hellirinn opnar að nýju.
Upplýsingar varðandi hellinn eru veittar í Duus Safnahúsum s. 420-3245 eða í gegnum netfangið duushus@reykjanesbaer.is