Má fagnað við komuna til landsins í gær

Hafþór óskar Má til hamingju með frábæran árangur á nýliðnu HM móti fatlaðra í London.
Hafþór óskar Má til hamingju með frábæran árangur á nýliðnu HM móti fatlaðra í London.

Már Gunnarsson fékk höfðinglegar móttökur við komuna til landsins í gær eftir frækilega keppni á heimsmeistaramóti fatlaðra í sundi sem fram fór í London nýverið. Hann kom heim með 10 Íslandsmet og bronsverðlaun í 100 metra baksundi. Már var sá eini af skandinavísku keppendunum sem komst á verðlaunapall. 

Þeir sem hafa verið að fylgjast með Má vita að hann hefur verið að ná feiki góðum árangri í sundi. Þó má segja að þetta hafi slegið öll met. Hafþór Birgisson íþrótta- og tómstundafulltrúi mætti fyrir hönd Reykjanesbæjar og afhenti Má blómvönd fyrir frábæran árangur. Að auki fékk Már blómvönd frá Íþróttabandalagi Reykjanesbæjar og allur hópurinn fékk góðar móttökur  og blóm frá Íþróttasambandi fatlaðra við komuna til landsins.

Framundan hjá Má er svo tónleikahald í Póllandi, það fyrsta utan Íslands. 

Már sýnir félögum sínum úr ÍRB verðlaunapeninginn

Anna Gunnlaugsdóttir frá ÍRB afhenti Má blómvönd

HM keppnishópurinn, þjálfarar og aðstoðarmenn við heimkomuna í gær