Margir starfsmenn í námi í leikskólakennararfræðum

Hér eru nemarnir saman komnir ásamt nokkrum skólastjórnendum, fulltrúum á fræðslusviði og sviðsstjó…
Hér eru nemarnir saman komnir ásamt nokkrum skólastjórnendum, fulltrúum á fræðslusviði og sviðsstjóra fræðslusviðs.

Reykjanesbær brást vel við tilmælum Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands sem hvöttu sveitarfélög til að styðja við átak fjölgun leikskólakennara. Í því skyni býður bærinn upp á sveigjanleika til að starfsmenn í leikskólum bæjarins geti stundað leikskólakennaranámið með vinnu.

Á dögunum kallaði fræðslusvið Reykjanesbæjar saman þá starfsmenn í leikskólum Reykjanesbæjar sem stundað hafa nám í leikskólakennarafræðum og einnig  þá sem voru að byrja sl. haust. Að sögn Ingibjargar Bryndísar Hilmarsdóttur leikskólafulltrúa hafa fáir útskrifast héðan af svæðinu á undanförnum árum og því sé það einkar ánægjulegt hversu námshópurinn er stór.

Frá Reykjanesbæ fylgja bestu óskir til leikskólakennaranemana um gott gengi í náminu.