Metþátttaka á Nettómóti sem fram fer um helgina

Frá Nettómóti
Frá Nettómóti

Metþátttaka er á Nettómótinu sem haldið verður í 20 sinn í Reykjanesbæ um helgina.
Alls hafa um 1000 þátttakendur skráð sig til leiks eða 148 keppnislið frá 22 félögum.

Liðin sem boðað hafa þátttöku sína eru:
Ármann, Breiðablik, Fjölnir, FSU, Grindavík, Haukar, Hekla, Hörður, Höttur, ÍA, ÍR, Keflavík, KFÍ, Kormákur, KR, Njarðvík, Reykdælir, Snæfell, Stjarnan, Tindastóll, Valur og Þór Akureyri.

Mótið fer fram í og kemur fjöldi sjálfboðaliða að skipulagningu þess sem er í höndum barna- og unglingaráðs körfuknattleiksdeilda Keflavíkur og Njarðvíkur. Auk leikja er boðið upp á ýmis konar afþreyingu og má þar nefna pizzuveislu, bíó, sund, kvöldvöku, stanslaust fjör í Reykjaneshöllinni og heimsókn til Skessunnar í hellinum. Foreldar og keppendur gista í grunnskólum Reykjanesbæjar þar sem boðið verður upp á morgunmat, hádegismat og kvöldverð keppnisdagana.

Umgjörð mótsins er glæsileg en markmið þess er að börn og foreldrar haldi heim sælir og glaðir með góðar minningar.

Mótið hefst kl. 8:00 á laugardagsmorgun með móttöku liða í Holtaskóla en kl. 9:00 hefjast fyrstu leikir á öllum völlum.

Tenglar: www.nettomot.blog.is