Metþátttaka í Lífshlaupinu

Margir vinnustaðir og skólar í Reykjanesbæ tóku þátt í Lífshlaupinu með góðum árangri
Margir vinnustaðir og skólar í Reykjanesbæ tóku þátt í Lífshlaupinu með góðum árangri

Í ár var metþátttaka í Lífshlaupinu. Þátttakendur voru alls 18.198 í 1.680 liðum og voru alls 16.261.466 hreyfimínútur skráðar og 209.413 dagar.

Lífshlaupið hefur fest sig í sessi víða og orðið að innanhússhefð á mörgum vinnustöðum og skólum hjá Reykjanesbæ. Ánægjulegt var að sjá hversu margir vinnustaðir og skólar tóku þátt í verkefninu í ár með flottum árangri.

Frábær þátttaka okkar fólks Í Lífshlaupinu skilaði okkur þremur af fimm efstu sætunum í flokki vinnustaða með 70-149 starfsmenn, Akurskóli sigraði þann flokk og Njarðvíkurskóli hafnaði í 2. sæti. Ráðhús Reykjanesbæjar hafnaði í 5. sæti í sama flokki.

Holtaskóli var í 4. sæti í hópi skóla með 300-499 nemendur og í 2. sæti í flokki vinnustaða með 30-69 starfsmenn.

Við óskum þátttakendum til hamingju með góðan árangur og hvatningu.