Miðla list til barna og ungmenna

List fyrir alla er verkefni á vegum mennta- og menningarmálaráðuneytisins sem hefur verið starfrækt síðastliðin 5 ár. Markmið þess er að miðla listviðburðum til barna og ungmenna um land allt og jafnar þannig aðgengi þeirra að fjölbreyttum og vönduðum listviðburðum óháð búsetu og efnahag. Höfuðáhersla er lögð á list fyrir börn og list með börnum og leitast við sinna öllum listgreinum jafnt svo nemendur eigi þess kost að kynnast fjölbreytni listanna, íslenskum menningararfi og list frá ólíkum menningarheimum.

Nú er hægt að nálgast yfirlit yfir öll söfn, sýningar, menningarhús og fleira hjá menningarstofnunum Reykjanesbæjar á vefsíðunni List fyrir alla.

Á vef verkefnisins List fyrir alla er að finna ítarlegar upplýsingar um barnamenningu og listviðburði fyrir ungt fólk í Reykjanesbæ, en einnig um allt land, sem gagnast bæði skólum og fjölskyldum.

Við hvetjum alla til að kynna sér þá barnamenningu sem í boði er hér í Reykjanesbæ sem og á öllu landinu inná vefsíðunni List fyrir alla.

Nánar um verkefnið hér