Mikil hálka um allan bæ.

Búast má við hálku næstu daga en unnið hefur verið að hálkuvörnum í öllum hverfum síðustu daga.

Vegfarendur eru beðnir um að fara varlega.

Íbúar geta nálgast hálkusand á eftirfarandi stöðum:

  • Heiðarberg – Keflavík
  • Grófin við smábátahöfn – Keflavík
  • Reykjaneshöll – Keflavík
  • Umhverfismiðstöð – Fitjabraut Njarðvík
  • Trönudalur á móti nr 9 – innri Njarðvík
  • Byggðarsafn Stapabraut – Innri Njarðvík
  • Lindarbraut milli 637-639 – Ásbrú
  • Þjóðbraut við Grænásbraut – Ásbrú
  • Félagsheimilið Höfnum