Nágrannavarsla við Kjarrmóa í Reykjanesbæ

Frá upphafi nágrannavörslu í Kjarrmóa
Frá upphafi nágrannavörslu í Kjarrmóa

Nágrannavörslu hefur verið komið á Kjarrmóa í Reykjanesbæ. Íbúarnir hafa bundist samtökum um að gæta að eignum hvers annar og fylgjast með hýbílum þegar nágrannar eru að heiman. Nágrannavarsla er nú á Þórsvöllum, Birkiteig, Sjafnarvöllum, Fífudal og Lágseyla því mun Kjarrmói verða sjötta nágrannavörslugatan í sveitarfélaginu.
Reykjanesbær tók formlega upp Nágrannavörslu síðasta sumar en verkefnið er samstarfsverkefni Umhverfissviðs Reykjanesbæjar og forvarnardeildar lögreglunnar á Suðurnesjum.

Starfsmenn umhverfissviðs og fulltrúi frá Lögreglunni á Suðurnesjum afhentu íbúum götunnar merki og límmiða til að setja í rúður og á hurðir. Merki verkefnisins var komið fyrir á staur við Kjarrmóa.

Íbúar og nágrannar, í Reykjanesbæ, sem vilja taka upp formlega nágrannavörslu eru hvattir til að hafa samband við Jónu Hrefnu Bergsteinsdóttur starfsmann USK í síma 421 6700 eða á usk@reykjanesbaer.is. Nauðsynlegt er að fá upplýsingar um ferli og kynningu áður en gata er útnefnd með „Nágrannavörslu".