Nemendur leik- og grunnskóla vígja ný fuglahús

Frá vígslu fuglahússins.
Frá vígslu fuglahússins.

Nemendur í leikskólunum Akri og Holti og Akurskóla gengu fylktu liði í morgun að tjörnunum í Innri Njarðvík en þar tóku þau þátt í formlegri vígslu á nýjum fuglahúsum sem komið hefur verið fyrir í hólmunum við tjarnirnar fuglunum og jafnframt börnum og fjölskyldum þeirra til ánægju og yndisauka.

Krakkarnir sungu sumarlög í tilefni dagsins en vígsla fuglahúsanna var liður í dagskrá Barnahátíðar í Reykjanesbæ sem nú stendur yfir.

Nú verður fróðlegt að sjá hvað fuglunum við tjarnirnar finnst um þetta nýja húsnæði en nemendurnir munu fylgjast vel með því í framtíðinni.