Nettómótið í körfuknattleik fer fram 2. - 4. mars

Kátir körfuboltaiðkendur á Nettómóti. Ljósmynd: Víkurfréttir
Kátir körfuboltaiðkendur á Nettómóti. Ljósmynd: Víkurfréttir

Helgina 2. – 4. mars nk. fer fram hið árlega Nettómót í körfuknattleik hér í Reykjanesbæ. Mótið er skipulagt af körfuknattleiksdeildum Keflavíkur og Njarðvíkur í samstarfi við Reykjanesbæ.

Búast má við þúsundum gesta til Reykjanesbæjar þessa helgi. Það er markmið allra sem koma að mótinu að taka vel á móti öllum þeim sem heimsækja okkur.

Forsvarsmenn veitingastaða, verslana og aðrir sem bjóða upp á hverskyns afþreyingu eru hvattir til að vera vel undirbúnir undir helgina og tilbúnir til að taka við miklum fjölda gesta. Markmiðið er að gestir okkar kveðji Reykjanesbæ með jákvæðum hug að loknu móti.

Með körfuboltakveðju.

Karfan Keflavík Njarðvík