Neyðarheimili fyrir börn

Kátir krakkar. Myndin tengist fréttinni ekki beint.
Kátir krakkar. Myndin tengist fréttinni ekki beint.

Barnavernd Suðurnesjabæjar í samstarfi við barnavernd Reykjanesbæjar auglýsir eftir umsóknum frá fjölskyldum og/eða einstaklingum sem eru tilbúin til að veita börnum móttöku á einkaheimilum

Barnaverndarnefndir þurfa að hafa tiltæk úrræði til að veita börnum móttöku í bráðatilvikum, til að tryggja öryggi þeirra, greina vanda eða til könnunar á aðstæðum þeirra sbr. 84. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002.

Hlutverk neyðarheimila
Hlutverk neyðarheimila er að taka á móti barni/börnum með stuttum fyrirvara til skemmri tíma, í allt að þrjá mánuði. Leitað er eftir fólki sem hefur áhuga á velferð barna og er tilbúið að taka á móti þeim með stuttum fyrirvara og mæta breytilegum þörfum þeirra. Mikilvægt er að skapa þeim öruggar aðstæður með hlýju og nærgætni. Þekking og reynsla af börnum er æskileg og umsækjendur þurfa að hafa náð 25 ára aldri.

Barnaverndarstofa veitir leyfi að undangenginni úttekt á heimilishögum af hálfu barnaverndarnefndar. Áhugasamir hafi samband við:

  • Maríu Gunnarsdóttur, forstöðumann barnaverndar Reykjanesbæjar í síma 421-6700 eða með því að senda tölvupóst á netfangið maria.gunnarsdottir@reykjanesbaer.is
  • Maríu Rós Skúladóttur, deildarstjóra félagsþjónustu Suðurnesjabæjar í síma 425-3000 eða með því að senda tölvupóst á netfangið mariaros@sudurnesjabaer.is

Um er að ræða gefandi starf þar sem fjölskyldur fá tækifæri til hlúa að börnum sem hafa upplifað erfiðar aðstæður.