Niðurfelling á fæðisgjaldi vegna systkina í grunnskólum

Frá matmálstíma í Heiðarskóla
Frá matmálstíma í Heiðarskóla

Þann 1. janúar 2020 tók gildi breyting á fæðisgjaldi til fjölskyldna með börn á grunnskólaaldri í Reykjanesbæ. Fæðisgjald er fellt niður ef börn á grunnskólaaldri í mataráskrift í sömu fjölskyldu eru fleiri en tvö. Niðurfelling á fæðisgjaldi er af mataráskrift elsta systkinis sem gerist sjálfkrafa þegar fjölskylda er með sama lögheimili og fjölskyldunúmer í þjóðskrá.

Í einhverjum tilvikum er fjölskyldusamsetningin flóknari en svo að það náist utan um hana með lögheimili og fjölskyldunúmeri í þjóðskrá. Í þeim tilvikum þurfa forráðamenn að óska eftir afslætti með viðeigandi útskýringum á fjölskylduhögum á Mitt Reykjanes. Hér gildir að börn geta aldrei verið tvítalin þegar þau eru í fleiri en einni fjölskyldu, t.d. þegar börn eru í sameiginlegri forsjá hjá tveimur fjölskyldum. Afslátturinn tekur gildi frá þeim tíma sem umsókn berst.

Viðmið fyrir niðurfellingu fæðisgjalda í grunnskólum

1. Ef þrjú systkini eða fleiri með lögheimili í Reykjanesbæ eru á grunnskólaaldri greiðir Reykjanesbær að fullu hádegismat frá og með þriðja systkini í áskrift í grunnskólanum. Systkini eru nemendur sem eru með sama lögheimili og fjölskyldunúmer í þjóðskrá.

2. Ef um þrjú systkini eða fleiri er að ræða þurfa öll eða a.m.k. þrjú að vera skráð í hádegismat svo gjald sé fellt niður hjá þriðja systkini. Forsjáraðili/forráðamaður greiðir aldrei hádegisverð fyrir fleiri en tvö systkini á grunnskólaaldri á sama tíma.

3. Fræðsluskrifstofa Reykjanesbæjar útvegar innheimtuaðila hádegisverðar í grunnskólum sveitarfélagsins upplýsingar um þau systkini sem uppfylla fyrstu grein reglnanna.

4. Sé fjölskyldumynstur annað en kemur fram í fyrstu grein þarf að sækja sérstaklega um afslátt á mínum síðum á Mitt Reykjanes.

5. Stundi systkini á grunnskólaaldri, með sama lögheimili í Reykjanesbæ og sama fjölskyldunúmer, nám sitt utan sveitarfélagsins gilda sömu reglur um niðurfellingu fæðisgjalds.

Ef einhverjar spurningar vakna er foreldrum/forráðamönnum bent á að hafa samband við þjónustuver Reykjanesbæjar.

*Þar sem foreldrar/forráðamenn, sem eiga rétt á niðurfellingunni, hafa nú þegar greitt fyrir janúarmánuð og greiðsluseðlar fyrir febrúar hafa einnig verið útbúnir  verður kreditfært í reikningnum fyrir marsmánuð hjá þeim sem eiga inni niðurfellingu fyrir janúar 2020.

Með því að smella á þennan tengil opnast Mitt Reykjanes