Notendaráð fatlaðs fólks

Vilt þú taka þátt í notendaráði fatlaðs fólks í Reykjanesbæ?

Óskum eftir fólki sem vill starfa í notendaráði og hafa þannig áhrif á málefni fatlaðs fólks hjá Reykjanesbæ. Starf notendaráðs sem eingöngu er skipað fötluðu fólki er að gefa álit sitt á stefnumótun um málefni fatlaðs fólks í Reykjanesbæ ásamt því að taka upp mál að eigin frumkvæði.

Undanfari setu í notendaráði er námskeið þar sem farið er yfir umhverfið sem notendaráðið mun starfa í s.s. lög, stjórnsýsla o.fl. Námskeiðið hefst 3. október frá kl. 16.00-17.20 og verður 4 skipti.

Umsóknarfrestur í notendaráðið er til 1. október og skal sækja um á MSS.is eða í síma 421 7500.

Kennari námskeiðsins er Tinna Kristjánsdóttir, þroskaþjálfi og ekkert gjald er fyrir þátttöku á námskeiðinu. Frekari upplýsingar veitir Jón verkefnastjóri námskeiðsins í gegnum tölvupóstfangið jonkp87@gmail.com.