Ný snjallgangbraut við Njarðarbraut eykur öryggi vegfarenda

Reykjanesbær hefur tekið í notkun nýja snjalllausn við gangbraut á Njarðarbraut sem ætlað er að auka öryggi gangandi og hjólandi vegfarenda.Kerfið nemur þegar fólk nálgast eða fer yfir gangbrautina og getur þá varað ökumenn við með LED-ljósum. Markmiðið er að gera vegfarendur sýnilegri og bæta öryggi, sérstaklega í myrkri og erfiðum veðurskilyrðum.

Samhliða verður sett upp sérstök lýsing við gangbrautina sem lýsir upp gangandi vegfarendur og auðveldar ökumönnum að sjá þá. Áform eru um að setja sambærilegan búnað upp við fleiri gangbrautir í bænum á næstu árum.

Kerfið safnar jafnframt saman tölfræðilegum upplýsingum um umferð, svo sem fjölda gangandi vegfarenda og ökutækja, hraða og umferðarmynstur. Upplýsingarnar nýtast við skipulagningu samgangna og úrbætur á umferðaröryggi. Kerfið tekur ekki upp myndskeið sem hægt er að skoða síðar og er ekki ætlað til að bera kennsl á einstaklinga.

Þrátt fyrir nýja tækni breytast reglur í umferðinni ekki. Ökumenn bera áfram ábyrgð á að sýna aðgát við gangbrautir og veita gangandi og hjólandi vegfarendum forgang. Vegfarendur eru sömuleiðis hvattir til að gæta varúðar áður en farið er yfir götu.

Verkefnið er hluti af vinnu Reykjanesbæjar að öruggari og skilvirkari samgöngum og mun reynslan af kerfinu nýtast við frekari úrbætur á öðrum stöðum í bænum!