Ný sýning í Listasafni Reykjanesbæjar

Guðný Kristmanns með eitt verka sinna.
Guðný Kristmanns með eitt verka sinna.

Laugardaginn 22. október kl. 14 opnar Listasafn Reykjanesbæjar sýningu á verkum Guðnýjar Kristmanns, listmálara, sem ber heitið „Holdtekja“. Guðný er ættuð úr Reykjavík, en hefur um árabil búið og starfað á Akureyri, þar sem hún hefur tekið þátt í fjölda listviðburða og vakið athygli fyrir litríka, kröftuga og tilfinningalega hlaðna málaralist. Í fyrra var hún útnefnd til myndlistarmanns Akureyrarbæjar og sýndi af því tilefni málverk sín í Hofi, nýju menningarhúsi bæjarins. Að auki tók hún þátt í samsýningu nokkurra listakvenna „Kynjóttar hvatir“, sem haldin var í Listasafninu á Akureyri 2009.

Rætur myndlistar Guðnýjar liggja í landslagstengdri abstraktmyndlist Kristjáns Davíðssonar, súrrealisma og evrópskum og amerískum abstrakt-expressjónisma. Málaralist hennar einkennist af líkamlegum skilningi á sköpunarferlinu, sem hún líkir beinlínis við hina „frumstæðu hvöt að skapa líf“, með tilheyrandi nautn, fullnægju og sársauka. Þar leggur Guðný m.a. til grundvallar kenningar Derridas og Nietzsches um tengslin milli sköpunar og kynferðis-og kynferðisathafna. Um leið tekur hún undir hugmyndir tilvistarspekinga um málverkið sem vettvang þar sem listamaðurinn endurskapar sjálfan sig í hverju verki.

Guðný hefur haldið sex einkasýningar og hafa þær allar farið fram á Akureyri. Sýningu hennar í Listasafni Reykjanesbæjar fylgir vönduð sýningarskrá með fjölda mynda og inngangi um listakonuna á íslensku og ensku eftir Aðalstein Ingólfsson.

Sýningu Guðnýjar Kristmanns í Listasafni Reykjaness lýkur 4. desember. Hún er opin kl. 12-17 virka daga og 13-17 um helgar.