Nýr búsetukjarni fyrir fatlað fólk

Undirritun á viljayfirlýsingu fyrir opnun á fleiri íbúðum fyrir fatlað fólk í Reykjanesbæ.

Á sólríkum haustdegi þann 20. september síðastliðinn fékk Reykjanesbær afhenda við formlega athöfn raðhúsalengju við Stapavelli. Húsnæðið er nýjasti íbúðarkjarninn Þar sem velferðarsvið veitir sólarhringsþjónustu við fatlað fólk. Í kjarnanum eru 7 íbúðir og eru 6 af þeim ætlaðar væntanlegum íbúum og ein íbúð er undir starfsmannaðstöðu þjónustukjarnans. Áformað er að þjónusta hefjist 2. október næstkomandi.

Þetta er fyrsti íbúðarkjarni fyrir fatlað fólk sem opnar í Reykjanesbæ frá því að þjónustukjarninn við Suðurgötu opnaði árið 2013. Þeir Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri og Guðbrandur Sigurðsson framkvæmdastjóri Brynju leigufélags rituðu undir viljayfirlýsingu um byggingu fleiri íbúða sem ætlaðar eru til útleigu til handa öryrkjum í Reykjanesbæ.

Byggist áætlun þeirra meðal annars á því að hægt sé að fá mótframlag frá ríki og sveitarfélagi uppá 30% byggingarkostnaðar. Afgangurinn er síðan fjármagnaður með fjármagni sem Brynja leigufélag setur í verkið.

Brynja leigufélag áformar að stækka íbúðasafn sitt á svæðinu um 37 íbúðir á tímabilinu 2023-2026. Nú þegar hafa 7 þeirra verið afhentar til útleigu með afhendingu húsnæðisins að Stapavöllum.