Nýr meirihluti í Reykjanesbæ

Framsókn, Samfylking og Bein Leið hafa myndað nýjan meirihluta í Reykjanesbæ og mun sá meirihluti taka við á bæjarstjórnarfundi þann 7.  júní nk.

Helstu áhersluatriði nýs meirihluta eru að viðhalda kröftugri uppbyggingu og horfa til framtíðar. Mikil fólksfjölgun og breytt samfélagsmynstur kallar á aukna þjónustu og hraða uppbyggingu innviða. Brýnt er að mæta þeirri þörf en í senn að tryggja áfram trausta fjármálastjórn.

Meirihlutinn mun leiða mikilvæg verkefni á næstu árum í góðu samstarfi við fulltrúa allra flokka í bæjarstjórn og íbúa Reykjanesbæjar. Það eru bjartir tímar framundan og saman munum við gera gott samfélag enn betra.

Reykjanesbær er eitt stærsta fjölmenningarsamfélag landsins, tækifærin sem felast í því eru fjölmörg. Nýr meirihluti mun vinna markvisst að því að efla samstarf við atvinnulífið og félagasamtök í bænum með það fyrir augum að samfélagið allt styðji þá aðila, sem kjósa að setjast hér að, til virkni í samfélaginu.

Kjartan Már Kjartansson, núverandi bæjarstjóri verður endurráðinn sem bæjarstjóri. Friðjón Einarsson oddviti Samfylkingar verður formaður bæjarráðs fyrri hluta kjörtímabilsins og Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir oddviti Framsóknar verður forseti bæjarstjórnar fyrri hluta kjörtímabilsins og formaður bæjarráðs seinni hluta kjörtímabilsins.

Oddvitar
Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir oddviti Framsóknar, Friðjón Einarsson oddviti Samfylkingar og Valgerður Pálsdóttir oddviti Beinnar leiðar