Nýr meirihluti í Reykjanesbæ

Málefnasamningur nýs meirihluta Sjálfstæðisflokks og Miðflokks var undirritaður við athöfn í Vatnsnesi síðdegis í gær. Nýr meirihluti tekur við á bæjarstjórnarfundi þriðjudaginn 2. júní.

Þar kom fram að helstu áherslur samstarfsins munu byggja á sameiginlegri sýn um öflugan, framsækinn og fjölskylduvænan Reykjanesbæ þar sem ábyrgur rekstur, sterk þjónusta og markviss uppbygging fara saman.

Vilhjálmur Árnason (D-listi) tekur við sem bæjarstjóri, Gunnlaugur Kárason (M-listi) sem formaður bæjarráðs og Margrét Þórarinsdóttir (D-listi) sem forseti bæjarstjórnar.