Nýr vefur Ljósanætur kominn í loftið!

Setningarathöfn Ljósanætur 2018
Setningarathöfn Ljósanætur 2018

Í tilefni af 20 ára afmæli Ljósanætur í ár var tekin ákvörðun um að ráðast í gerð nýs vefjar fyrir hátíðina þar sem sá gamli var orðinn barn síns tíma og glímdi við ýmsa tæknilega erfiðleika.

Vefurinn sem nú hefur litið dagsins ljós er unninn í samvinnu við vefhönnunarfyrirtækið Stefnu. Hann hefur að megin markmiði að dagskrá hátíðarinnar sé sem aðgengilegust. Fara á nýjan vef ljósanætur.

Dagskráin birtist eftir dögum í tímaröð auk þess sem hægt er að skoða heildardagskrá. Þá er einnig á einfaldan hátt hægt að flokka viðburði eftir tegund og einnig dögum. Þannig má á auðveldan hátt finna dagskrá fyrir börn á laugardegi svo dæmi sé tekið.

Meðal nýjunga er að nú birtast á vefnum fréttir tengdar hátíðinni, þannig að allar helstu upplýsingar um hátíðina og það sem er efst á baugi hverju sinni er þar að finna. Þá er nú einnig hægt að skoða dagskrána á ensku sem er mjög jákvæð viðbót.

Líkt og verið hefur er einn megin kostur vefjarins sá að viðburðahaldarar skrá sjálfir á vefinn eigin viðburði með texta og mynd. Hann bíður samþykktar og birtist að því fengnu. Nú er einnig hægt að setja inn upplýsingar á ensku um viðburðinn og er fólk eindregið hvatt til að gera það, jafnvel þótt aðeins sé um lágmarksupplýsingar sé að ræða t.d. hvort um er að ræða tónleika eða myndlistarsýningu o.s.frv. Viðburðirnir munu birtast eins og þeir eru skráðir inn utan þess að þeir eru yfirfarnir.

Það er von þeirra sem að hátíðinni standa að svefirinn nýtist notendum hans vel. Alltaf má reikna með smávægilegum byrjunarörðugleikum og eru allar ábendingar um þá vel þegnar, ýmist með tölvupósti á netfangið ljosanott@ljosanott.is eða með skilaboðum á facebooksíðunni Ljósanótt. Vefinn má skoða hér.