Opið fyrir tilnefningar á heiðursborgara Reykjanesbæjar

Reykjanesbær hefur ákveðið að útnefna heiðursborgara á hátíðarfundi bæjarstjórnar sem fram fer á 30 ára afmælisdegi sveitarfélagsins þann 11. júní næstkomandi

Óskað er eftir tilnefningum frá starfsmönnum, bæjarbúum og öðrum áhugasömum aðilum á netfangið heidursborgari@reykjanesbaer.is fyrir 1. júní 2024.

Auk nafns, kennitölu og heimilisfangs þeirra sem tilnefnd eru þarf að fylgja ítarlegur rökstuðningur ásamt upplýsingum um sendanda.

Útnefning heiðursborgara Reykjanesbæjar tekur mið af störfum viðkomandi einstaklings í þágu Reykjanesbæjar eða afrekum í þágu lands og þjóðar. Er sérstaklega litið til þess hvort störf viðkomandi hafi haft veruleg jákvæð áhrif á samfélagið.