- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Foreldrar, starfsmenn Reykjanesbæjar, sveitarstjórn, fræðsluráð, gamlir nemendur sem og aðrir bæjarbúar eru boðnir velkomnir á opinn dag í Myllubakkaskóla í tilefni af alþjóðlegum degi kennara 5. október nk.
Skólinn verður opinn frá kl. 8:10 til 14:00 og verður heitt kaffi á könnunni.
Nemendur munu veita leiðsögn um skólann, myndaalbúm verða til sýnis sem og ýmis verkefni nemenda. Einnig verður boðið upp á myndasýningu (slideshow).
Kennsla verður með hefðbundnum hætti eg allar kennslustofur verða opnar.
Stjórnendur, kennarar og annað starfsfólk Myllubakkaskóla vonast til þess að sem flestir sjái sér fært að mæta.