Opinn íbúafundur um fjármál Reykjanesbæjar

Reykjanesbær á fallegum vetrardegi. Ljósmynd Garðar Ólafsson.
Reykjanesbær á fallegum vetrardegi. Ljósmynd Garðar Ólafsson.

Reykjanesbær efnir til opins fundar í Bíósal Duus Safnahúsa miðvikudaginn 13. desember kl. 17:30. Á fundinum verður farið yfir endurskipulagningu efnahags og aðlögunaráætlun ásamt því að líta fram á veginn til verkefna framundan.

Dagskrá fundarins er þessi:

  • Endurskipulagning efnahags Reykjanesbæjar
  • Aðlögunaráætlun 2017-2022
  • Fjárhagsáætlun 2018
  • Áherslur einstakra sviða 2018