Orðaspjallið - Að efla orðaforða og hlustunarskilning barna með bóklestri

Frá útgáfu Orðaspjalls.
Frá útgáfu Orðaspjalls.

Í tilefni af útkomu bókarinnar Orðaspjall - Að efla orðaforða og hlustunarskilning barna með bóklestri, var haldið útgáfuhóf í Duus húsum í síðustu viku.  Bókin er afrakstur þriggja ára þróunarstarfs leikskólakennara í leikskólanum Tjarnarseli undir stjórn Árdísar Hrannar Jónsdóttur.  Árdís lagði grunn að Orðaspjallsaðferðinni í meistaranámi sínu árið 2008.
Þróunarverkefnið var unnið í samvinnu við Rannsóknarstofu um þroska, mál og læsi í Háskóla Íslands  og forstöðumann hennar, Hrafnhildi Ragnarsdóttur prófessor.

Leikskólinn fékk styrk úr Þróunarsjóði námsgagna og er Tjarnarsel fyrstur leikskóla á landinu til að fá styrk úr þeim sjóði.   Einnig styrkti Manngildissjóður Reykjanesbæjar verkefnið með myndarlegum hætti.  Bókin er ætluð leikskólakennurum, kennurum yngsta stigs grunnskóla og öðrum sem vinna að uppeldi og menntun ungra barna. Einnig er Orðaspjallið gott innlegg í vinnu með tvítyngdum börnum á leik - og grunnskólaaldri til að styrkja orðaforða þeirra.

Að sögn Ingibjargar Bryndísar Hilmarsdóttur, leikskólafulltrúa Reykjanesbæjar, er hér um mikið frumkvöðlastarf að ræða og að Orðaspjallið komi með nýja aðferðafræði  og sýn á  lestur  bóka með börnum og hvernig hægt sé að nýta hann til að auka orðaforða þeirra.