Öruggari Suðurnes

Fyrsti samráðsfundur um svæðisbundið samráð um varnir gegn ofbeldi og öðrum afbrotum á Suðurnesjum var haldinn í Duus Safnahúsi í Reykjanesbæ mánudaginn 27. nóvember sl. Lögreglustjórinn á Suðurnesjum, Grindavíkurbær, Reykjanesbær, Suðurnesjabær, Sveitarfélagið Vogar, Fjölbrautaskóli Suðurnesja, Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, Heilsugæslan Höfða, Keilir, Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum og Sýslumaðurinn á Suðurnesjum stóðu að fundinum og undirrituðu í lok hans samstarfsyfirlýsingu um verkefnið Öruggari Suðurnes sem felst í því að hefja og formfesta svæðisbundið samráð um varnir gegn ofbeldi og öðrum afbrotum á Suðurnesjum.

Bjarney Annelsdóttir, yfirlögregluþjónn hjá lögreglustjóranum á Suðurnesjum setti fundinn og bauð fólk velkomið. Í kjölfarið ræddi Sigþrúður Guðmundsdóttir verkefnisstjóri verkefnisins um tölfræði um ofbeldi á Suðurnesjum og upplifun íbúa af öryggi og Hilma Hólmfríður Sigurðardóttir verkefnisstjóri fjölmenningar hjá Reykjanesbæ fjallaði um sérstöðu Suðurnesja þegar kemur að íbúasamsetningu svæðisins. Alda Hrönn Jóhannsdóttir yfirlögfræðingur hjá lögreglustjóranum á Suðurnesjum flutti erindi um sérstöðu svæðisins frá sjónarhorni lögreglu. Í lokin fundar fengu fundarmenn að heyra stuttar hugleiðingar fólks um ofbeldi og ofbeldisvarnir en undir þeim lið töluðu Hilmar Jón Stefánsson, félagsráðgjafi hjá Félagsþjónustu Suðurnesjabæjar og Voga, Sonný Norðfjörð Gunnarsdóttir og Betsý Árna Kristinsdóttir, hjúkrunarfræðingar á HSS, starfsfólk félagsmiðstöðvarinnar Fjörheima, þau Gunnhildur Gunnarsdóttir, Thelma Hrund Ólafsdóttir og Ólafur Bergur Ólafsson og frá Fjölbrautaskóla Suðurnesja þau Rannveig Sigríður Ragnarsdóttir, félagsráðgjafi og Leó Máni Quyen Nguvén formaður nemendafélags FS og Valur Axel Axelsson markaðsstjóri nemendafélagsins.

Mikið var rætt í viðræðunum en mikil samstaða ríkti um mikilvægi þess að beina afbrotavörnum að börnum og ungu fólki og virkja foreldra í því starfi. Rætt var um svæðisbundnar áskoranir og tækifæri, þar á meðal alþjóðaflugvöllur í útjaðri, hátt hlutfalli fólks af erlendum uppruna og sterk hefð fyrir samvinnu milli kerfa. Fundargestir lýstu miklum áhuga fyrir enn nánara samstarfi og í þeim anda ríkti gleði yfir  undirritun samstarfsyfirlýsingarinnar þar sem samstarfsaðilar skuldbinda sig til að vinna saman gegn ofbeldi og öðrum afbrotum með sameiginleg markmið og gjörðir.