- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Óskum eftir fólki sem vill starfa í notendaráði og hafa þannig áhrif á málefni fatlaðs fólks hjá Reykjanesbæ. Starf notendaráðsins, sem eingöngu er skipað fötluðu fólki, er að gefa álit sitt á stefnumótun um málefni fatlaðs fólks í Reykjanesbæ ásamt því að taka upp mál að eigin frumkvæði.
Undanfari setu í notendaráði er námskeið þar sem farið er yfir umhverfið sem notendaráðið mun starfa í s.s. lög, stjórnsýsla o.fl. Námskeiðið hefst 6. mars frá kl. 16-17 og verður 4 skipti.
Umsóknarfrestur í notendaráðið er til 1. mars og skal sækja um á mss.is eða í síma 421-7500. Kennari námskeiðsins er Tinna Kristjánsdóttir, þroskaþjálfi og ekkert gjald er fyrir þátttöku á námskeiðinu. Frekari upplýsingar veitir Jón verkefnastjóri námskeiðsins í gegnum tölvupóstfangið jonkp87@gmail.com