Óskað eftir tilboðum í ræstingar

Í flokknum Verk I eru ýmsar stofnanir Reykjanesbæjar.
Í flokknum Verk I eru ýmsar stofnanir Reykjanesbæjar.

Ríkiskaup, fyrir hönd Reykjanesbæjar og Fasteigna Reykjanesbæjar ehf., óska eftir tilboðum í ræstingar. Útboðið skiptist í tvo flokka, annars vegar Verk I sem eru ýmsar stofnanir Reykjanesbæjar og hins vegar Verk II sem eru ýmsar fasteignir á vegum Fasteigna Reykjanesbæjar ehf.

Ekki er skylt að bjóða í báða flokka útboðsins, en bjóða skal í alla hluta innan boðins flokks. Útboðsgögn eru afhent frá og með deginum í dag og er skilafrestur tilboða til 23. nóvember kl. 11:00. Strax að loknum skilafresti verða tilboð opnuð.