Óskað eftir tilnefningum til menningarverðlauna Reykjanesbæjar 2010

Frá sýningu í listasal Duushúsa
Frá sýningu í listasal Duushúsa

Menningarráð Reykjanesbæjar óskar eftir tilnefningum vegna Súlunnar, menningarverðlauna Reykjanesbæjar 2010.

Veittar eru ein eða tvær viðurkenningar hverju sinni, aðra viðurkenninguna fær einstaklingur/hópur sem unnið hefur vel að menningarmálum í bænum og hina fær fyrirtæki sem stutt hefur við menningarlíf bæjarins með fjárframlögum eða öðrum hætti. Tilnefningum skal skilað á skrifstofu menningarsviðs, Tjarnargötu 12 eða á netfangið sulan@reykjanesbaer.is fyrir 28. október næstkomandi.

Menningarráð Reykjanesbæjar