Óskir íslenskra barna - ljósmyndasýning í Duus Safnahúsum

Ein af myndunum á sýningunni.
Ein af myndunum á sýningunni.

Í tengslum við Listahátíð barna býður Listasafn Reykjanesbæjar upp á ljósmyndasýninguna Óskir íslenskra barna, sem ferðast nú um landið og er gjöf ljósmyndarans Ástu Kristjánsdóttur og Barnaheilla - Save the Children á Íslandi í tilefni af 25 ára afmæli samtakanna og Barnasáttmálans.

Ljósmyndirnar byggja á reynslusögum úr samtíma íslenskra barna sem hafa upplifað ofbeldi, vanrækslu, einelti eða fátækt.  Myndirnar sýna óskir barnanna um betra líf.

Fræðsla er mikilvægur þáttur í sýningunni þar sem börn eru frædd um mannréttindi sín og hvert hægt er að leita ef þau telja að brotið sé á þeim sjálfum eða einhverjum í kringum þau.

Sýningin gegnir einnig því hlutverki að skapa von þar sem börn geta á einfaldan hátt skrifað óskir sínar á miða og hengt á sérstakt óskatré. Texti úr barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna er á sérstökum vegg til að minna á réttindi barna.

Ásta Kristjánsdóttir á langan feril að baki og starfar í dag sem ljósmyndari í Reykjavík. Í myndum sínum leitast hún gjarnan við að senda skilaboð til áhorfandans sem endurspegla sýn hennar á samfélagið.

Þess má geta að á meðan Listahátíð barna stendur yfir, 4. – 22. maí fá fullorðnir frítt inn í fylgd barna