Öskudagur „Got Talent“ - Keppni í Fjörheimum á öskudag

Verðlaunahafa í Öskudagur
Verðlaunahafa í Öskudagur "Got talent" árið 2016.

Krakkar, eruð þið byrjuð að æfa öskudagsatriðið ykkar?
Ef ekki, þá skuluð þið drífa ykkur í gang, því Öskudagur „Got Talent“ fer fram í þriðja sinn í Fjörheimum á öskudaginn þann 1. mars.

Öskudagur er einn þeirra daga sem börnin bíða með mikilli eftirvæntingu. Þá er sköpunarkraftinum gefinn laus taumur og allir mæta í skólann í nýjum hlutverkum sem ofurhetjur, prinsessur, uppvakningar eða hvaðeina annað sem þeim finnst heillandi. Skólastarfið er að sjálfsögðu í takt við þá sem þangað mæta og öskudagsfjör í algleymingi.

Að skóladegi loknum hópast börnin niður í bæ og ganga á milli fyrirtækja, syngja lög sem þau hafa æft og fá að launum smáræðis glaðning. Mörg barnanna leggja mikið upp úr atriðinu sínu og hafa lagt sig fram um að æfa það vel og gera það skemmtilegt.
Þess vegna er gaman að gefa þeim kost á flytja atriðin sín fyrir aðra og frammi fyrir dómnefnd. Veitt verða verðlaun annars vegar fyrir skemmtilegasta atriðið í 1.-3. bekk og 4.-7. bekk og hins vegar fyrir flottasta búninginn og frumlegasta búninginn. Allir krakkar eru því hvattir til að líta við í Fjörheimum til að flytja atriðið sitt og láta smella af sér búningamynd. Foreldrar eru hvattir til að mæta með börnum sínum.

„Öskudagur Got Talent“ fer fram í Fjörheimum, Hafnargötu 88, á öskudag frá kl. 13 – 15. Skráning er á staðnum og eru allir velkomnir.

Auglýsing á keppninni Öskudagur got talent árið 2017