Rafræn stjórnsýsla hjá byggingarfulltrúa

Embætti byggingarfulltrúa í Reykjanesbæ hefur eftir fremsta megni að vera leiðandi í rafrænum lausnum.

Í dag tekur embættið ekki við neinum gögnum öðruvísi en á rafrænan hátt. Sem dæmi sækja einstaklingar eða hönnuðir um byggingarleyfi rafrænt á MittReykjanes.is og hlaða inn gögnum til yfirferða. Tilkynningar um hönnunarstjóra, aðra hönnuði, byggingarstjóra og iðnmeistara eru einnig rafræn á heimasíðu Reykjanesbæjar, ásamt öðrum eyðublöðum og öðrum fylgiskjölum fyrir byggingarleyfi.

Á heimasíðu Reykjanesbæjar er undirsíða byggingarfulltrúa full af fróðleik varðandi umsóknir og skil á gögnum.

Embætti byggingarfulltrúa hóf breytingu á móttöku umsókna, fylgigagna og uppdráttum með því markmið að minnka pappírsnotkun 1. október 2019 og hefur kolefnisspor hjá byggingarfulltrúa minnkað um 6,41 tonn. Þetta er mikið framfaraspor í rafrænum lausnum sem hefur jákvæð áhrif á kolefnisspor embættisins. 

Tölfræði frá 06. febrúar 2023.