Reykjanesbær bíður enn frumvarpsins

Horft yfir Reykjanesbæ.
Horft yfir Reykjanesbæ.

Á fundi bæjarráðs Reykjanesbæjar í gær, var eftirfarandi bókun samþykkt samhljóða með öllum greiddum atkvæðum:

Bæjarráð Reykjanesbæjar minnir á að ítrekað hefur komið fram í máli forsvarsmanna ríkisstjórnarinnar að sambærilegt frumvarp verði lagt fram um Helguvík og gert er um Bakka. Minnt er á að nú eru örfáir dagar til þingloka. Í frumvörpum um Bakka er verið að lögsetja þjálfunarstyrki, styrki til vegagerðar, lóðaframkvæmda og stuðning við hafnarframkvæmdir. Á viðræðufundi með fjármálaráðherra var óskað eftir að forsvarsmenn bæjarins hlutuðust til um að lögð yrði fram umsögn væntanlegs Kísilvers vegna þjálfunarstyrks, sem hefur verið gert. Bæjarráð treystir því að frumvarpið verði lagt fram af ríkisstjórninni."