Reykjanesbær etur kappi við Akureyri í Útsvari í kvöld

Reykjanesbær og Akureyri í Útsvari kvöldsins
Reykjanesbær og Akureyri í Útsvari kvöldsins

Reykjanesbær etur kappi við lið Akureyrar í spurningaþættinum Útsvari í  kvöld, föstudaginn 12. mars.

Lið Reykjanesbæjar skipa Baldur Guðmundsson, Hulda G. Geirsdóttir og Theodór Kjartansson.

Viðureignin er jafnframt síðasti þáttur í 8 liða úrslitum en liðið sem sigrar mun komast í hóp með Reykjavík, Fljótsdalshéraði og Garðabæ og keppa um sæti í úrslitum. Ekki missa af Útsvari næstkomandi föstudagskvöld kl.20:05 eða strax á eftir Kastljósi.
 
Áfram Reykjanesbær!


Mynd: Lið Reykjanesbæjar ásamt liði Norðurþings, Ljótu hálfvitunum, sem þeir kepptu í fyrstu viðureign.