Reykjanesbær greiðir niður skuldir

Reykjanesbær hefur ákveðið að greiða niður skuldir um 2,5 milljarða kr.  Samsvarandi innistæða bæjarsjóðs á reikningi í Landsbankanum er nýtt til að greiða niður skuldabréfaútboð sem bærinn efndi til í október 2008.

Í ársreikningi fyrir árið 2009 eru tilgreindar 14,1 milljarður í skuldir og skuldbindingar A-hluta að undanskyldum leiguskuldbindingum.  Þessi skuldalækkun nemur 17,7% af þeirri upphæð.